Fara í efni

Úthlutað úr Þróunarsjóði Flateyrar í fjórða sinn!

Styrkhafar 2023
Styrkhafar 2023

Í gær 14 febrúar voru styrkir úr Þróunarsjóði Flateyrar afhentir með formlegum hætti á samkomu í Gunnukaffi á Flateyri.

Alls bárust 25 umsóknir þar sem í heildina var sótt um ríflega 32 miljónir af heildarkostnaði verkefna upp á 50,6 miljónir. Til úthlutunar voru 15 miljónir.

Flestar umsóknir vísuðu til með einum eða öðrum hætti til markmiða Flateyrarverkefnisins og niðurstaðna íbúaþings og áherslum í sóknaráætlun Vestfjarða. Af þeim 16 verkefnum sem hlutu styrk má flokka fjögur sem samfélagsverkefni og tólf sem verkefni í atvinnu- og nýsköpun. Reynt var að velja sem fjölbreyttust verkefni og var stuðst við stigagjöf eftir mat á tilteknum þáttum í takt við markmið og áherslur verkefnisins. Mat verkefna tekur mið af íbúasamráði í tengslum við samfélagsverkefni á Flateyri og markmið Sóknaráætlunar Vestfjarða. Umsóknir sem bárust í sjóðinn voru metnar af verkefnisstjórn byggðalagsins, sem skipuð er fulltrúum frá Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og hverfaráði Önundarfjarðar.

Verkefni sem hlutu styrk í þetta sinn má sjá hér að neðan.

Heiti verkefnis Nafn umsækenda Upphæð
Hvítisandur, sjóböð í Holtsfjöru Runólfur Ágústsson og samstarfsaðilar 1.300.000

Jólagjöf hestsins

Kalksalt ehf

900.000

Brum - Leikfangagerð á Flateyri

Viktor Páll Magnússon

750.000

Samkomuhúsið á Flateyri, ástandskönnun og gerð kostnaðaráætlunar vegna nauðsynlegra endurbóta

Lýðskólinn á Flateyri

500.000

Markaðssetning fyrir Sumardagskrá Vagnsins 2023

Flateyrarvagninn ehf.

1.200.000

Litlabýli treats-tækjakaup

Litlabýli ehf

1.100.000

Vetrarferðamennska - útbúnaður

Lýðskólinn á Flateyri

1.300.000

Ásýnd þorps: Umhverfisátak

Kvenfélagið Brynja, Flateyri

600.000

Þverárvirkjun í Korpudal

KorpaTech

650.000

Eldsteinn/Firestone

Magnús Gunnar Eggertsson

500.000

Korpudalur Glamúr Camping

KorpaTech

750.000

Ocean Adventure Center

Nicole Sühring

1.300.000

Hamp rækt á Flateyri

Önundur Hafsteinn Pálsson/ Geir Magnússon

800.000

Markaðssetning fyrir opnun Hnappsins

Juraj Hubinák

800.000

Ostatankur fyrir Ostagerðarfélag Önfirðinga

Ostagerðarfélag Önfirðinga

1.800.000

Þriggja þrepa sköpunarferli í vinnu- og sýningarrými

Margeir Haraldsson f.h ÖN

750.000

 

Verkefnisstjórn óskar styrkhöfum til hamingju með styrkina og óskar þeim góðs gengis með verkefni sín.