Fara í efni

Þróunarsjóður Flateyrar

Þróunarsjóður Flateyrar úthlutar nú í fimmta og síðasta sinn. Sjóðurinn styrkir nýsköpunar- og samfélagsverkefni sem efla atvinnu- og mannlíf á Flateyri og Önundarfirði og er gert ráð fyrir 20 milljónum til úthlutunar.

Mat verkefna tekur mið af niðurstöðum íbúaþings á Flateyri og markmiðum Sóknaráætlunar Vestfjarða. Þær umsóknir sem berast í sjóðinn verða metnar af verkefnisstjórn byggðarlagsins sem skipuð er fulltrúum frá Ísafjarðarbæ, Vestfjarðastofu og Hverfisráði Önundarfjarðar.

Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóðinn fyrir styrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Flateyri og Önundarfirði, sem verkefnisstjórn úthlutar.

Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar 2023 kl. 16.00.

Allir sem búa yfir hugmyndum að nýsköpunar- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu á Flateyri og Önundarfirði eru hvattir til að sækja um.

Frekari upplýsingar og tengil á umsóknareyðublað er að finna hér á upplýsingasíðu Vestfjarðastofu Þróunarsjóður Flateyrar eða hjá verkefnastjóra á Flateyri Hrönn Garðarsdóttir hronng@isafjordur.is og í síma 867-4035.