Fara í efni

Bolungarvíkurkaupstaður - Grunnskóli Bolungarvíkur auglýsir lausar stöður

Störf í boði

Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 140 börn á aldrinum fimm til sextán ára. Skólinn byggir starfsemi sína á faglegu og framsæknu skólastarfi sem tekur mið af þroska og hæfni nemenda. Lögð er áhersla á samþættingu námsgreina og samvinnu kennara. Í skólanum er fjölmenningarlegt samfélag nemenda, starfsmanna og foreldra.

Leitað er eftir sjálfstæðum og metnaðarfullum starfsmönnum með þekkingu og mikinn áhuga á skólastarfi.

Umsjónarmaður heilsuskóla og dægradvalar

· 60% staða Vinnutími 12:00-16:30.

· 25% staða Vinnutími 14:00-16:00

· Heilsuskólinn er fyrir 1.-4. bekk og er frá kl. 13:00-14:00.

· Dægradvöl er fyrir Malir ( 5 ára), 1.-2. bekk og er frá kl. 14.00-16.00.

· Í starfinu felst umsjón, skipulag og frágangur ásamt samstarfi við kennara 5 ára deildar / þjálfara heilsuskólans.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót í samstarfi
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og samviskusemi
  • Góð tök á íslensku máli
  • Vilji til að taka þátt í leiðandi starfi skólans

Umsóknum skilað til skólastjóra á netfangið halldoras@bolungarvik.is

Nánari upplýsingar veitir Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir skólastjóri í síma 4567249 , netfang: halldoras@bolungarvik.is

Umsóknarfrestur er til og með 29. 08.2025