Fara í efni

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum — Staða skrifstofumanns á Patreksfirði - Tímabundið starf

Störf í boði

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf skrifstofumanns á skrifstofu embættisins á Patreksfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn afgreiðsla.

  • Samskipti og aðstoð við viðskiptavini.

  • Skrifstofu- og ritarastörf.

  • Önnur tilfalli verkefni í málaflokkum sem sinnt er hjá embættinu.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af skrifstofustörfum æskileg.

  • Jákvæðni, þjónustulund og góðir skipulags- og samkiptahæfileikar.

  • Fumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta unnið undir álagi.

  • Metnaður og áreiðanleiki í starfi.

  • Góð almenn tölvukunnátta. Íslenku og enkukunnátta.

  • Hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Starfið er tímabundið til 1. október með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum á Vestfjörðum sem heyra undir ríkisvaldið. Þrjár starfsstöðvar eru innan embættisins: Á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Starfsmenn eru 17 í 14.8 stöðugildum. Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhugaverð og kalla á mikil og góð samskipti við viðskiptavini.

Sýslumenn eru í fremstu röð í stafrænni stjórnsýslu og hafa metnað til að veita skjóta og góða þjónustu.

Hjá embættinu er lagt upp úr góðum starfsanda og vinnuaðstöðu, símenntun og sveigjanleika í starfi.

Nánar má fræðast um embætti sýslumanna á vefnum www.island.is á slóðinni www.syslumenn.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Jónas B. Guðmundsson, jonas.gudmundsson@syslumenn.is

Sími: 4582400

Gabríela Aðalbjörnsdóttir, gabriela@syslumenn.is

Sími: 4582400

Sækja um starf