22. maí 2025
Störf í boði
Um er að ræða starf þjónustustjóra hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða fyrir Sólar ehf. Starfið getur verið fullt starf og yrði þá í byrjun blanda af ræstingarstarfi og stjórnunarstarfi. Starfið gæti einnig verið 50% hlutastarf og væri þá eingöngu um stjórnunarstarf að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráða og þjálfa starfsfólk
- Sinna daglegri stjórnun á ræstingu
- Halda utan um launamál starfsfólks
- Sinna gæðaeftirliti með ræstingum
- Tengiliður Sólar ehf við stofnunina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð skipulagshæfni og samskiptafærni
- Ábyrgðakennd
- Hreint sakavottorð
- Jákvæðni og tilbúin að læra nýja hluti
Samkeppnishæf laun í boði fyrir réttan einstakling.
Frekari upplýsingar um starfið er að finna hér.