Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir starfsmanni í stuðningsþjónustu á Þingeyri. Um er að ræða starf í tímavinnu sem hentað getur mjög vel samhliða annarri vinnu. Æskilegast er að viðkomandi sé búsettur á Þingeyri og geti hafið störf 15. ágúst 2025.
Markmið stuðningsþjónustu er að efla þjónustuþega til sjálfsbjargar og sjálfstæðis og því reynist starfið afar fjölbreytt og gefandi. Leitað er eftir jákvæðri og drífandi manneskju sem hefur áhuga á mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni
- Þrif á heimilum þjónustuþega skv. vinnuleiðbeiningum
- Félagslegur stuðningur
- Ýmis aðstoð við heimilisstörf skv. vinnuleiðbeiningum
- Samskipti við þjónustuþega
- Aðstoð við innkaup/erindarekstur
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Samviskusemi og stundvísi
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Frumkvæði og þolinmæði
- Góð íslenskukunnátta
- Bílpróf
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (VerkVest/Kjöl).
Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí 2025. Umsóknum skal skilað á netfangið eythorb@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Eyþór Bjarnason, forstöðumaður stuðningsþjónustu í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-