Um er að ræða 100% staða kennara með sérhæfða hæfni í kennslu á yngsta stigi
Viltu slást í hóp starfsmanna sem hafa starfsgleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leiðarljósi? Meðal áherslna Bíldudalsskóla er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfinu.
Starfssvið
- Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótum á skólastarfi
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari
- Sérhæfð hæfni á yngsta stigi grunnskóla
- Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á að starfa með börnum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
- Reynsla af teymisvinnu kostur
- Góð íslenskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2025
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.
Frekari upplýsingar gefur Lilja Rut Rúnarsdóttir, skólastjóri liljarut@vesturbyggd.is og tekur hún á móti umsóknum. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.