04. júní 2025
Fréttir
Störf í boði
Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra á Drangsnesi. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða í Kaldrananeshreppi og vinnur að eflingu byggðar og mannlífs í Kaldrananeshreppi.
Verkefnið er til fimm ára og er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Kaldrananeshreppi.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Drangsnesi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar
- Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu
- Skýrslugerð og upplýsingamiðlun til íbúa og samstarfsaðila
- Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu
- Aðstoð við gerð styrkumsókna og viðskiptaáætlana
- Önnur verkefni samkvæmt samkomulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun áskilin.
- Reynsla af ráðgjöf, fjárfestingum eða atvinnuþróun æskileg
- Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórn
- Þekking, skilningur og reynsla af atvinnu- og byggðamálum
- Þekking á styrkjaumhverfi og skrifum umsókna í innlenda og erlenda sjóði
- Frumkvæði, jákvæðni, samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar.
Fríðindi í starfi
Sveiganlegur vinnutími