Fara í efni

Ísafjarðarbær - Frístundaleiðbeinendur í félagsmiðstöð

Störf í boði

Ísafjarðarbær óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinendur í félagsmiðstöðina á Ísafirði.

Leitað er að áhugasömum og drífandi einstaklingum sem hafa gaman af því að vinna með unglingum. Félagsmiðstöðin býður upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir börn á aldrinum 13 -16 ára. Hlutverk miðstöðvarinnar er að styðja við unglinga í gegnum fjölbreytt tómstundastarf, hópefli og hópastarf. Meginmarkmið starfsins er að veita unglingum tækifæri til samveru og stunda heilbrigðar tómstundir undir leiðsögn tómstundaleiðbeinenda.

Um er að ræða tímabundið starf í tímavinnu frá 21. ágúst 2025 til 5. júní 2026, tvö kvöld í viku frá 19:30-22:00 og föstudaga frá 19:30-22:30.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hafa umsjón með frístundastarfi unglinga
  • Vinna í samræmi við stefnu Ísafjarðarbæjar í íþrótta- og tómstundamálum
  • Er nánasti samstarfsmaður barna og unglinga í ráðum og nefndum og aðstoðar þá við skipulagningu og framkvæmd viðburða eins og við á
  • Samráð og samvinna við ungmenni og starfsfólk

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfinu
  • Starfsreynsla á sviði forvarna-, félags- og tómstundamála æskileg
  • Gott vald á íslenskri tungu
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og leiðtogahæfni
  • Reglusemi
  • Þarf að vera 20 ára eða eldri

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.

Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí 2025. Umsóknum skal skilað til Evu Maríu Einarsdóttur, forstöðumanns, í netfangið evaei@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva María í síma: 450-8059 eða í gegnum fyrrgreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-