Laus eru til umsóknar tvö störf stuðningsfulltrúa í dægradvöl á Ísafirði. Störfin eru tímabundin frá 21. ágúst nk. til 5. júní 2026.. Vinnutíminn er frá 13:00 til 16:00 (42% starfshlutfall) alla virka daga. Næsti yfirmaður er forstöðumaður dægradvalar. Störfin eru afar skemmtileg, lífleg og gefandi.
Helstu verkefni:
- Þátttaka í uppeldisstarfi þar sem megináhersla er lögð á velferð og vellíðan barns/barna
- Full þátttaka í öllu dagskipulagi dægradvalar og frístundar
- Samstarf við foreldra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
- Reglusemi
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Starfsreynsla á frístundasviði kostur
- Vera orðin(n) 18 ára
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí 2025. Umsóknum skal skilað til Evu Maríu Einarsdóttur, forstöðumanns, í netfangið evaei@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva María í síma: 450-8059 eða í gegnum tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-