Fara í efni

Umsóknarfrestur - Æskulýðssjóður

Fyrir hverja?
Börn og ungmenni, á aldrinum 6-25 ára.

Til hvers?
Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína.

Umsóknarfrestur: Næsti umsóknarfrestur er 15. febrúar 2023, kl. 15:00. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 1. mars kl 15:00

 

Æskulýðssjóður byggir á Æskulýðslögum ( nr. 70/2007) og reglugerð um Æskulýðssjóð ( nr. 60/22. janúar 2008 ásamt breytingum nr. 173/2016 febrúar 2016 og breytingum nr. 60/2. desember 2016 ). Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Einkum er horft til verkefna sem eru unnin fyrir börn og ungmenn og/eða með virkri þátttöku þeirra, þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, nýjungar og þróunarverkefni og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Hverjir geta sótt um?
Allir þeir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök. Ekki er gert ráð fyrir að hefðbundin íþróttafélög sæki um verkefni sem snúa að íþróttastarfsemi í þennan sjóð.

Hvað er styrkt?
Verkefni fyrir börn og ungmenni á vegum æskulýsfélaga og æskulýðssamtaka (Sjá nánar 1. gr. í reglum sjóðsins)

Skilyrði úthlutunar og forgangsatriði
Verkefnin þurfa að falla að markmiðum laga um Æskulýðsfélög. Þar segir að með æskulýðsstarfi sé átt við skipulagða félags- og tómstundastarfsemi þar sem börn og ungmenni starfa saman í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þau sjálf meta að verðleikum. Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né endurtekna viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar atburði né ferðir hópa. Lögð er áhersla á að styrkja almennan verkefniskostnað en ekki launakostnað.

Vefsíða Æskulýðssjóðs.