Fara í efni

Opinn fundur á Ísafirði - Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034.

Við bjóðum til kynningarfundar þar sem gerð verður grein fyrir helstu breytingum í kerfisáætlun 2025-2034. Sérfræðingar Landsnets, sem komu að gerð hennar, munu sitja fyrir svörum varðandi þau atriði sem fram koma á kynningum fundanna. 

Fundurinn verður haldinn í Bryggjusalnum í Edinborgarhúsinu 7.maí 2025 kl.16:00.

Dagskrá

Kerfisáætlun: Samhengi og umhverfið
Svandís Hlín Karlsdóttir - Framkvæmastjóri Viðskipta- og kerfisþróunar

Þróun flutningkerfisins, afhendingaröryggi og þjóðhagslegt virði
Árni B. Möller - Sérfræðingur í þróun flutningskerfis raforku

Svæðisbundin þróun - aukið samstarf við dreifiveitu og hagsmunaaðila
Guðrún Margrét Jónsdóttir - Sérfræðingur í kerfisgreiningum

Pallborð: Vestfjarðastofa, Blámi og Orkubú Vestfjarða

Fundarstjóri verður Herdís Sigurgrímsdóttir