Fara í efni

Verkís - Byggingarhönnuðir í útibú Verkís á landsbygðinni

Störf í boði

Við leitum eftir drífandi og metnaðarfullum byggingarverkfræðingum eða byggingartæknifræðingum til að ganga til liðs við öflugt teymi sérfræðinga í útibúum okkar á Vesturlandi, Vestfjörðum, Austurlandi, Suðurlandi og Reykjanesi.

Starfið felst í hönnunarverkefnum á breiðu sviði innan mannvirkjagerðar, fjölbreyttri verkfræðiráðgjöf ásamt eftirliti með verkframkvæmdum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Byggingarverkfræðingur eða byggingartæknifræðingur
  • Reynsla af hönnun og ráðgjöf í mannvirkjagerð er kostur
  • Kunnátta í teikniforritum t.d. AutoCAD, Revit eða Civil3D
  • Gott vald á íslensku og ensku

 

Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi og frábæra vinnufélaga. Verkefnin eru fjölbreytt og starfsfólkið okkar getur nýtt sér sveigjanlegan vinnutíma til að samræma sem best vinnu og einkalíf. Hjá Verkís hefur allt starfsfólk 30 daga orlof óháð starfsaldri og full dagvinnulaun í fæðingarorlofi í allt að 7,5 mánuð.

 

Nánari upplýsingar veitir Áslaug Ósk Alfreðsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum aoa@verkis.is.

Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2025

Sækja um starf