Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði - Starfsmaður í heimaþjónustu

Störf í boði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða einstakling til starfa í heimaþjónustuteymi HVest á Patreksfirði. Heimaþjónustan byggist á heimahjúkrun, heimastuðningi og heimaendurhæfingu og veitt samkvæmt stuðningsáætlun sem gerð hefur verið fyrir íbúa í heimahúsum með það að markmiði að styðja sjálfstæða búsetu aldraðra.

Helstu verkefni og ábyrgð

Veita einstaklingsmiðaða aðstoð og umönnun á heimilum skjólstæðinga.

Aðstoð við daglegt heimilishald og þrif og stuðla að sjálfstæði þeirra sem þjónustan nær til.

Samvinna við aðra teymismeðlimi til að tryggja góða þjónustu.

Hæfniskröfur

Jákvætt viðmót og umhyggja fyrir velferð annarra.

Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.

Góð samskiptahæfni

Bílpróf er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum hafa gert.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá

Full stytting vinnuviku hefur verið innleidd við stofnunina.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 280 manns starfa á fjórum megin starfsstöðum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall eftir samkomulagi

Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2025

Starfshlutfall er 30-80%

Umsóknarfrestur er til og með 13.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Sigríður María Sigurðardóttir, sigridur.m.sigurdardottir@hvest.is

Sími: 4502000

Hildur Elísabet Pétursdóttir, hildurep@hvest.is

Sækja um starf