Fara í efni

Dokkan – Aðstoðarmaður í brugghús

Störf í boði

Við leitum að aðstoðarmanni í brugghús – Taktu þátt í bruggævintýri á Ísafirði!

Dokkan brugghús óskar eftir drífandi og áreiðanlegum einstaklingi til starfa sem aðstoðarmaður í brugghúsi. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í lifandi umhverfi þar sem framleiðsla og þjónusta fara saman.

Helstu verkefni:

  • Aðstoð við daglega bruggframleiðslu (dósun, fyllingu, pökkun o.fl.)
  • Umhirða á tækjabúnaði og vinnurýmum
  • Almenn aðstoð við verkefni sem tengjast brugghúsinu
  • Vinna á bar og samskipti við gesti

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á bjór og bruggferlum (reynsla er kostur en ekki skilyrði)
  • Góð þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæð vinnubrögð og samviskusemi

Við bjóðum:

  • Tækifæri til að læra um bjórgerð og taka þátt í handverksbruggun
  • Lifandi og vinalegt vinnuumhverfi í hjarta Ísafjarðar
  • Sveigjanlegan vinnutíma – hlutastarf eða fullt starf, eftir samkomulagi

Ertu til í að taka þátt í bruggævintýri með okkur? Hafðu samband við Gunnhildi í síma 862 6793 eða sendu póst á dokkan@dokkanbrugghus.is.