Staða umsjónaraðila við Framhaldsdeild Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Patreksfirði er laus til umsóknar.
Umsjónaraðili á Patreksfirði er nemendum til aðstoðar og stuðnings. Umsjónaraðilinn hefur umsjón með nemendum, aðstoðar þá í náminu og í samskiptum við kennara ef á þarf að halda.
Starfið felst m.a. í umsjón með daglegri starfsemi deildarinnar og aðstoð við nemendur, en þeir stunda dreifnám frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Viðkomandi fylgir nemendum í námsferðir til Grundarfjarðar, ef þörf er á.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
er nemendum á Patreksfirði til aðstoðar og stuðnings,
-
hefur umsjón með nemendum, aðstoðar þá í náminu og í samskiptum við kennara ef á þarf að halda,
-
er í samstarfi við aðra starfsmenn, nemendur, foreldra og forráðamenn,
-
hefur viðtalstíma fyrir nemendur sína og forráðamenn þeirra.
-
aðstoða nemendur við athafnir í daglegu lífi á skólatíma,
-
aðstoða kennara eða þroskaþjálfa í kennslustundum,
-
vinna að sértækum verkefnum með nemendum undir stjórn kennara eða þroskaþjálfa.
-
skipuleggur og undirbýr nemendaferðir til Grundarfjarðar.
Hæfniskröfur
Leitað er að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfileika og er lipur í samskiptum. Einnig er mikilvægt að viðkomandi sé fljótur að tileinka sér nýjungar og sé vel tölvufær. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi góða íslenskukunnáttu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Ráðið er í stöðuna frá 15.ágúst 2025.
Nánari upplýsingar veita Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari, s:4308400 og hrafnhildur@fsn.is
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist skólameistara, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði eða á netfangið hrafnhildur@fsn.is síðasta lagi 24.júní 2025. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 75-80%
Umsóknarfrestur er til og með 23.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, hrafnhildur@fsn.is
Sími: 8650424