Við embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum er laus til umsóknar staða varðstjóra með starfsstöð á Patreksfirði. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri skipi í stöðuna frá 1. september 2025
Helstu verkefni og ábyrgð
Um verksvið og ábyrgð lögregluvarðstjóra er vísað til 10. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu, þar sem fram kemur m.a. að varðstjóri skuli sinna löggæslustörfum og rannsóknum mála. Hann hefur með höndum vaktstjórn samkvæmt varðskrá og stjórn einstakra verkefna eða hóps lögreglumanna við almenn löggæslustörf. Hann hefur og eftirlit með því að reglum og fyrirmælum sé fylgt.
Í umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum eru þrjár lögreglustöðvar. Ein á Hólmavík, önnur á Patreksfirði og sú þriðja á Ísafirði. Staða sú sem hér er auglýst felur í sér vaktstjórn á einni þeirra, Patreksfirði. En þar eru bakvaktir utan reglulegra vakta.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Umsækjandi skal hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 2 ár frá því að hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi.
Við stöðuveitinguna verður litið til hæfni umsækjanda, starfsaldurs, þekkingar, menntunar, starfsreynslu og kyns.
Góð staðarþekking og stjórnunarreynsla er kostur. Færni í mannlegum samskiptum, skipulagshæfileikar, frumkvæði og nákvæmni í vinnubrögðum eru mikilvægir eiginleikar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfið er vaktavinna.
Umsóknum skal skilað til lögreglustjórans á Vestfjörðum, Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður eða senda með því að nota meðfylgjandi hlekk.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir liðnum eyðublöð.
Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til þess að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Helgi Jensson, hj02@logreglan.is
Sími: 8624807
Hlynur Hafberg Snorrason, hlynur.snorrason@logreglan.is
Sími: 8921694