Fara í efni

Íþróttahúsið Torfnesi – Baðvörður í íþróttamannvirki

Störf í boði

Laust er til umsóknar starf kvenkyns baðvarðar íþróttamannvirkis í íþróttahúsinu að Torfnesi á Ísafirði. Um er að ræða ótímabundið 100% starf í vaktavinnu og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamannvirkja.

Helstu verkefni:

  • Móttaka og þjónusta við viðskiptavini
  • Öryggisgæsla og baðvarsla, almenn gæsla og eftirfylgni umgengnisreglna
  • Ræsting, þrif og þvottur á Torfnesi og í vallarhúsi
  • Umhirða og eftirlit með íþróttavöllum þar sem það á við
  • Aðstoð við uppsetningu leikja og frágang
  • Umhirða og eftirlit með líkamsræktartækjum þar sem það á við
  • Minniháttar viðhald í mannvirkjum
  • Gagnaskráning

Hæfniskröfur:

  • Lipurð og færni í samskiptum
  • Rík þjónustulund, sveigjanleiki og jákvæðni
  • Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hand- og verklagni
  • Haldgóð þekking í skyndihjálp
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).

Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2025. Umsóknum skal skilað á netfangið gretarhe@isafjordur.is eða á skrifstofu forstöðumanns íþróttamannvirkja í Íþróttahúsinu Torfnesi. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar veitir Grétar Helgason forstöðumaður í síma 450-8488 eða 848-1085 og/eða í gegnum fyrrgreindan tölvupóst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

-Við þjónum með gleði til gagns-