Fara í efni

Saman gegn sóun á Ísafirði

Þann 16. apríl frá kl. 13:00-15:30 verður Umhverfisstofnun með opinn fund í Edinborgarhúsinu þar sem þátttakendur fá fræðslu um þau tækifæri sem liggja í bættri nýtingu og minni sóun og koma með tillögur að aðgerðum.

Frítt inn og léttar veitingar – öllum fundum verður einnig streymt.

Hér er viðburðurinn á Facebook
Skráning er nauðsynleg - sjá hér

HVAÐ ERU ÚRGANGSFORVARNIR?

  • Hvernig komum við í veg fyrir að verðmæti verði að rusli?
    • Hvernig nýtum við hluti, efni og auðlindir betur og lengur?
    • Hvernig getur fjármagn og regluverk hjálpað fyrirtækjum í átt að minni sóun?
    • Hvaða ávinning hefur þetta allt saman í för með sér fyrir fyrirtæki og fólk?

Þetta er kjarninn í stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir - Saman gegn sóun.

FYRIR HVER?

  • Öll!
    • Starfsfólk fyrirtækja
    • Starfsfólk sveitarfélaga og stofnana
    • Nemendur
    • Almenning

AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ MÆTA?

  • Tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu stjórnvalda og koma sjónarmiðum þínum eða þíns vinnustaðar á framfæri
    • Fræðsla um hringrásarhagkerfið
    • Innblástur frá fyrirtækjum á svæðinu
    • Tækifæri til að spyrja sérfræðinga spurninga
    • Tækifæri til að ræða við fólk og fyrirtæki af svæðinu um þessi mál
DAGSKRÁ 📣
💥Saman gegn sóun
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, Umhverfisstofnun
💥Hringrásarhagkerfið á Vestfjörðum
Magnús Þór Bjarnason, Vestfjarðastofa
💥Hringrásin alla leið: fyrir samfélagið - með samfélaginu
Bergrún Ólafsdóttir, Samkaup
💥Íslensk nýsköpun bjargar mannslífum
Guðbjörg Þrastardóttir, Kerecis
👥Samtal um aðgerðir