Fara í efni

Fyrir frumkvöðla

Upplýsingamyndbönd fyrir frumkvöðla - frá hugmynd að veruleika

Landshlutasamtökin undir forystu Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum og í samstarfi við Byggðastofnun hafa látið útbúa fræðslumyndbönd með upplýsingum fyrir þá sem ganga með hugmynd í maganum, vilja sækja um styrki, eru að velta fyrir sér rekstarformum fyrirtækja, vilja gera viðskiptaáætlun eða koma sínum rekstri á framfæri og um markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Myndböndin eru stutt og gagnleg og fjallar hvert þeirra um afmarkað efni. Hægt er að horfa á myndböndin hér fyrir neðan og eru textuð á íslensku, ensku og pólsku en hægt er að velja um texta með að ýta á cc á spilaranum

Rekstrarform
Þegar kemur að því að stofa fyrirtæki er mikilvægt að velja rekstrarform sem hentar. Það gæti virkað flókið - en ekki láta flókin orð standa í vegi fyrir stórkostlegri hugmynd.

Styrkir og sjóðir
Vilt þú sækja um styrk til að koma hugmynd þinni áfram? Ráðgjafar Vestfjarðastofu veita stuðning til frumkvöðla á öllum stigum nýsköpunar.

Markaðssetning
Markaðssetning er lykilþáttur í rekstri fyrirtækja. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því hvað það er sem viðskiptavinurinn þarfnast svo hægt sé að uppfylla þarfir hans. 

Viðskiptaáætlun
Hvernig geri ég viðskiptaáætlun? - Vestfjarðastofa veitir stuðning til fyrirtækja og frumkvöðla á öllum stigum nýsköpunar. 

Ertu með viðskiptahugmynd
Hvaða virði hefur varan eða þjónustan? Hvaða vanda leysir hún og hvaða þörf er hún að uppfylla?

Markaðssetning á samfélagmiðlum
Markaðssetning á samfélagsmiðlum hefur það fram yfir aðra miðla að auðvelt er að greina árangurinn og yfirleitt er kostnaður lítill. En hvaða miðill hentar þér og þínum viðskiptavinum?