Fara í efni

Yfirsálfræðingur - Heilbrigðisstofun Vestfjarða

Störf í boði

Yfirsálfræðingur - starf án staðsetningar

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir til umsóknar stöðu yfirsálfræðings á heilsugæslu. Starfinu er skipt á milli geðheilsuteymis stofnunarinnar og þjónustu við börn. Aðalstarfsstöð hefur verið á Ísafirði en gert er ráð fyrir að sálfræðingur veiti þjónustu tvo til þrjá daga í mánuði á Patreksfirði. Unnið er að því að geðheilbrigðisþjónusta verði í boði í öllu umdæmi stofnunarinnar, meðal annars með fjarheilbrigðisþjónustu og kemur til greina að sálfræðingur vinni að hluta eða öllu til í fjarvinnu. Næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við skjólstæðinga á Ísafirði, Patreksfirði í gegnum fjarheilbrigðisþjónustu og/eða á staðnum.
  • Samstarf við aðrar fagstéttir heilsugæslunnar og geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu.
  • Samstarf við skóla og félagsþjónustu á svæðinu, sem og við Barna- og unglingageðdeild Landspítalans.
  • Þátttaka í frekari innleiðingu á fjarheilbrigðisþjónustu.
  • Þátttaka í uppbyggingu geðheilsuteymis.
  • Handleiðsla í boði

Hæfniskröfur

  • Klínískt nám í sálfræði og starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • Þekking og reynsla á gagnreyndum aðferðum
  • Reynsla af greiningu og meðferð barna og fullorðinna með geðrænan vanda
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
  • Áhugi, geta og faglegur metnaður til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
  • Góð almenn tölvukunnáttu
  • Íslenskukunnátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 250 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs. Húsnæðishlunnindi eru í boði bæði á Ísafirði og Patreksfirði.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2022

Nánari upplýsingar veitir

Súsanna Björg Ástvaldsdóttir - susannaba@hvest.is - 450-4500

Smelltu hér til að sækja um starfið