Fara í efni

Verk­stjóri í áhaldahús á Bíldudal

Störf í boði

Vest­ur­byggð óskar eftir að ráða verk­stjóra í áhaldahús Vest­ur­byggðar á Bíldudal.

Starfið er yfirgripsmikið og felst meðal annars í umsjón og vinnu við ýmsar verklegar framkvæmdir, viðhald á gatnakerfi, eftirlit og viðhald á vatn og fráveitu, samskiptum við íbúa, umhirða á eignum sveitarfélagsins, sér um verkbókhald og samþykkt á reikningum, jafnframt kemur verkstjóri beint að vinnu við fjárhagsáætlun bæjarins. Verkstjóri fer með mannaforráð í áhaldahúsi yfir sumartíma.

Vesturbyggð vinnur að uppsetningu á nýrri slökkvistöð og áhaldahúsi á Bíldudal, verkstjóri mun taka virkan þátt í þeirri vinnu. Verkstjóri áhaldahúss mun sinna hafnarvörslu að hluta á Bíldudalshöfn eftir nánara samkomulagi.

Næsti yfirmaður er sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Menntun og hæfniskröfur

  • Vinnuvélaréttindi
  • Iðnmenntun er nýtist í starfi kostur
  • Vigtarréttindi kostur en viðkomanda verður boðin aðstoð við öflun réttinda
  • Reynsla af sambærilegum störfum kostur
  • Lipurð í mannlegum samskiptum er mikilvæg svo og sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Tölvukunnátta er nauðsynleg

Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2022

Starfshlutfall er 100%. Ráðið verður í starfið sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Geir Gestsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vesturbyggðar í síma 868 0869 eða í tölvupósti geir@vesturbyggd.is

Umsóknir ásamt starfsferilskrá skulu sendar til geir@vesturbyggd.is. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfssins þegar að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.