Þörungaverksmiðjan óskar eftir að ráða háseta um borð í Gretti BA.
Grettir siglir til þangslátturmanna víðs vegar um Breiðafjörð og sækir hjá þeim þangpoka og flytur heim að verksmiðjunni. Siglt er 4-6 sinnum í viku, reynt er að hafa sjóferðir á virkum dögum og frí um helgar. Siglingartími ræðst að mestu út frá sjávarföllum. Háseti aðstoðar við lestun, sér um ýmis þrif og aðstoðar við viðhald. Þegar Grettir er í höfn á virkum dögum þá vinnur hann þau verkefni sem skipstjóri felur honum.
Einnig þarf starfsmaður að hafa góða öryggisvitund og vera viljugur að taka þátt í því öryggisstarfi sem fer fram í Þörungaverksmiðjunni.
Þörungaverksmiðjan hvetjum konur jafnt sem karla til þess að sækja um starf í góðu og öruggu vinnuumhverfi Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum.
Þörungaverksmiðjan getur aðstoðað við leit að húsnæði á svæðinu.
- Aðstoð við lestun á þangi
- Þrif
- Almenn vinna um borð
- Aðstoða vélstjóra/skipstjóra eftir þörfum
- Gilt skírteini úr sjómannaskólanum Sæbjörgu
- Öryggisvitund
- Ávextir og grænmeti í boði
- Hlífðarfatnaður og öryggisbúnaður
- Fullt fæði í sjóferðum
Þörungaverksmiðjan er 40 ára rótgróið fyrirtæki sem sækir þang og þara í Breiðafjörð allan ársins hring. Öryggis og umhverfismál eru mikilvæg í starfi verksmiðjunnar. Í dag starfa um 20 manns í fjölbreyttum störfum við verksmiðjuna.
Hægt er að sækja um starfið hér