Umhverfis- og eignasvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar 100% starf tækjamanns í þjónustumiðstöð/áhaldahúsi bæjarins. Leitað er eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Helstu verkefni
- Stjórnun minni tækja
- Lagnavinna
- Gatnagerð
- Ýmiskonar viðhald s.s. viðhald gatna, gönguleiða, holræsa og vatnslagna
- Ýmiskonar flutningur og önnur þjónusta við stofnanir bæjarins
Hæfniskröfur
- Réttindi til að stjórna minni tækjum
- Góð samskiptafærni, sveigjanleiki og rík þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Gott líkamlegt ástand
- Góð íslenskukunnátta
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).
Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2024. Umsókn, afrit af prófskírteinum og ferilskrá skal senda til Kristjáns Andra Guðjónssonar, forstöðumanns þjónustumiðstöðvar, á netfangið ahaldahus@isafjordur.is. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Andri, í síma 620-7634 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-