Fara í efni

Starfsmaður í skammtímavistun

Störf í boði

Skammtímavistun auglýsir eftir starfsmanni í tímavinnu. Um er að ræða 10 tíma næturvaktir, alla jafna aðra hvora helgi. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Hvestu og skammtímavistunar.

Markmiðið með skammtímavistun er að fjölskyldur fatlaðra barna og ungmenna eigi kost á því að börn þeirra njóti tímabundinnar dvalar í skammtímavistun. Þjónustunni er ætlað að létta álag af fjölskyldum og stuðla með þeim hætti að því að börn og ungmenni með fötlun geti búið sem lengst í heimahúsum. Einnig eiga fullorðnir þjónustuþegar sem búa í foreldrahúsum kost á skammtímavistun með það markmið að veita þeim tilbreytingu eða til undirbúnings á flutningi úr foreldrahúsum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
  • Önnur tilfallandi störf samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Stuðningsfulltrúanám I og II æskilegt
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Almenn ökuréttindi æskileg

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjölur/VerkVest).

Umsóknum skal skilað til Sigþrúðar Margrétar Gunnsteinsdóttur, forstöðumanns Hvestu og skammtímavistunar á sigthrudur@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2024. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður í síma 773-7271 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-