Stjórn Héraðssambands Vestfirðinga auglýsir starf framkvæmdastjóra HSV laust til umsóknar. HSV er með starfssvæði í Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhreppi og hefur 16 aðildarfélög innan sinna vébanda. Sambandið vinnur náið með sveitarfélögunum tveimur að uppbyggingu íþróttamála á svæðinu ásamt því að vinna með aðildarfélögum að framgangi einstakra íþróttagreina.
Framkvæmdastjóri er starfsmaður stjórnar HSV og ber ábyrgð á daglegum rekstri ásamt samskiptum við sveitarfélög, aðildarfélög og aðra hagsmunaaðila innan íþróttahreyfingarinnar. Um er að ræða 75-100% starf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst n.k eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni:
- Umsjón með rekstri HSV ásamt áætlunargerð
- Eftirfylgni með framkvæmd Íþróttaskóla HSV
- Samskipti við Ísafjarðarbæ og eftirfylgni með framkvæmd samninga við bæjarfélagið
- Samskipti við aðildarfélög HSV
- Samskipti við UMFÍ, ÍSÍ og sérsambönd
- Samskipti við stjórn HSV
Hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
- Þekking á íþróttahreyfingunni og ástríða fyrir íþróttum
- Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, önnur tungumálakunnátta kostur
- Reynsla af rekstri
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Góð almenn tölvukunnátta ásamt grunnþekkingu í að vinna með heimasíður
Með umsókn skulu eftirfarandi gögn fylgja:
- Ferilskrá og kynningarbréf
- Afrit af prófskírteinum
- Meðmæli eða umsagnir um fyrri störf umsækjanda
Umsóknir skulu berast í tölvupósti á netfangið formadur@hsv.is
eða bréfleiðis á skrifstofu HSV:
Héraðssamband Vestfirðinga
Suðurgötu 12
400 Ísafjörður
Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2021
Nánari upplýsingar veitir:
Ásgerður Þorleifsdóttir formaður HSV s. 697-7867 / formadur@hsv.is