Fara í efni

Sérfræðingur í byggingartækni - Ísafjörður

Störf í boði

Sérfræðingur í byggingartækni

EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum sérfræðingi í byggingartækni. Um er að ræða starf á Vestfjörðum í fagteymi bygginga. Starfsstöð er á Ísafirði og best væri að viðkomandi gæti hafið störf í janúar eða eftir nánara samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og eftirlit verklegra framkvæmda
  • Rakaskimun bygginga og kynning á niðurstöðum og tillögum að endurbótum
  • Ástandsskoðanir fasteigna, gallagreining og tillögur að endurbótum
  • Byggingaeðlisfræði bygginga
  • Hönnun mannvirkja á sviði vatnslagna og burðarvirkis
  • Gerð útboðs- og samningsskilmála, verklýsingar og kostnaðaráætlanir tengt viðhaldsverkefnum innan- og utanhúss
  • Umsjón og eftirlit með verklegum framkvæmdum bygginga
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði eða byggingarfræði er skilyrði
  • Iðnmenntun og/eða reynsla af byggingaframkvæmdum er kostur
  • Þekking á innivist og loftgæðum í byggingum er kostur
  • Þekking á helstu teikniforritum er æskileg, t.d. Autocad og Revit
  • Mikill áhugi á sérhæfingu og starfsþróunar innan starfssviðs
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum, framsögu og geta til að vinna vel í teymi
  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Góð þekking á íslensku og ensku, einnig er þekking á Norðurlandamáli kostur

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði. Við vinnum fjölbreytt verkefni í teymum þvert á svið og svæði.

Ef þú leitar að afbragðs starfsumhverfi og áhugaverðum starfsvettvangi í alþjóðlegu umhverfi og hressu samstarfsfólki þá gætum við átt samleið. EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki, með skýra jafnréttisstefnu og leitumst við að jafna kynjahlutfall innan hinna ýmsu starfa hjá okkur. Við hvetjum því konur jafnt sem karla, til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir svæðisstjóri EFLU Vestfjarða, Samúel Orri Stefánsson, á netfangið: samuel.orri.stefansson@efla.is og Erla Dröfn Kristjánsdóttir, mannauðssérfræðingur, á netfangið : erla.drofn.kristjansdottir@efla.is.

Sótt er um starfið í gegnum alfred.is - hér