07. júní 2021
Störf í boði
Kerecis óskar eftir metnaðarfullum starfsmanni í gæðadeild. Um er að ræða sumarstarf með möguleika á framlengingu. Starfsmaður mun vinna náið með gæðastjóra við að stýra og þróa gæðakerfi Kerecis.
Starfsmaður mun koma að innri úttektum, skráningu og vinnslu úrbóta og fyrirbyggjandi aðgerða, skjalastjórnun, ásamt öðrum verkefnum í gæðadeild.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Mjög góð enskukunnátta
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Starfið er á starfsstöð Kerecis á Ísafirði. Umsóknir sendist á: hr@kerecis.com.