Fara í efni

Grunnskólinn á Ísafirði - Stuðningsfulltrúi

Störf í boði

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar starf stuðningsfulltrúa. Um er að ræða 75% starf og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starf stuðningsfulltrúa við Grunnskólann á Ísafirði tengist einkum þeim nemendum skólans sem hafa sérþarfir og/eða þurfa á sérkennslu eða á sérstakri aðstoð að halda. Einnig hópum þar sem sérstakrar aðstoðar er þörf. Oftast starfa stuðningsfulltrúar innan bekkja undir verkstjórn kennara og deildarstjóra stoðþjónustu. Til viðbótar eru þeim falin ýmis skólatengd viðfangsefni, eins og gæsla o.þ.h.. Starfstími stuðningsfulltrúa er yfirleitt 9,5 mánuðir á ári.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoð og stuðningur við nemendur
  • Eftirfylgni kennsluáætlunar og/eða einstaklingsnámskrár
  • Vinna við ýmis skólatengd verkefni
  • Gæsla nemenda
  • Samstarf við kennara og deildarstjóra stoðþjónustu

Hæfniskröfur:

  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg
  • Gott frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Sveigjanleiki
  • Rík þolinmæði og umburðarlyndi
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við FosVest/VerkVest.

Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2021. Umsóknir skulu sendar til Sveinfríðar Olgu Veturliðadóttur skólastjóra, á netfangið sveinfridurve@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Sveinfríður í síma 450-8305 eða í gegnum tölvupóst.