Fara í efni

Grunnskólinn á Ísafirði - Myndmenntakennari

Störf í boði

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir starf myndmenntakennara laust til umsóknar. Um er að ræða 90-100% starf frá 3. janúar 2022 eða eftir nánara samkomulagi. Viðkomandi kemur til með að starfa samkvæmt lögum og reglugerð um grunnskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Ísafjarðarbæjar. Viðkomandi vinnur að uppeldi og menntun grunnskólabarna.

Grunnskólinn á Ísafirði er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 380 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og verið þátttakandi í vinaliðaverkefninu. Skólinn er í góðu og öflugu samstarfi við íþróttahreyfinguna og listaskóla bæjarins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennsluréttindi
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
  • Skipulagsfærni og nákvæmni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Samviskusemi, stundvísi og sveigjanleiki
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknum skal skilað til Sveinfríðar Olgu Veturliðadóttur skólastjóra á netfangið sveinfridurve@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2021. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Allar nánari upplýsingar veitir Sveinfríður Olga í síma 450-8300 eða í gegnum fyrrgreindan tölvupóst.