Matráður/kokkur annast gerð matseðla út frá næringarfræðilegum sjónarmiðum. Annast matargerð. Hefur yfirumsjón með störfum aðstoðarmatráðs. Um er að ræða 60%-75% starf í nokkra mánuði og viðkomandi þarf að getað hafið störf sem fyrst.
Ábyrgðarsvið:
- Setur upp fjölbreytta og næringarríka matseðla sem mæta næringarþörf barna.
- Skólinn telur ca 87 börn og ca 30 kennara og annað starfsfólk í allt.
- Hafa/afla sér þekkingar á sérfæði.
- Fylgist með rekstrarstöðu eldhúss hjá skólastýru og leitast við að innkaup og skipulagning séu sem hagkvæmust.
- Hefur umsjón með því að tæki og búnaður í eldhúsi starfi eðlilega og lætur stjórnendur vita ef viðgerða/lagfæringa er þörf.
- Fylgist með borðbúnaði og öðrum lausamunum í eldhúsi og sér um endurnýjun og innkaup þegar þörf er á í samráði við stjórnendur skólans.
- Situr þá fundi sem skólastjórnendurfara fram á er tengjast starfssviði matráðs.
- Skuldbindur sig til að vinna samkvæmt þeim sameiginlegu ákvörðunum sem teknar eru á starfsmannafundum og/eða í starfsmannaviðtölum.
Dagleg verkefni:
- Gerð og/eða móttaka matar.
- Sér um morgunmat og frágang
- Sér um gerð matseðla fyrir hvern mánuð skólaársins og setur inn á heimasíðu skólans.
- Sér um innkaup á matar-, þurr- og ræstivörum skólans.
- Sinnir ásamt aðstoðarmatráði ræstingu eldhústækja, áhalda, vagna og almenns uppvasks.
Aðstoðarmatráður er staðgengill matráðs/kokks og sér um hans/hennar störf þegar hann er fjarverandi. Vinnur í samstarfi við matráð og sinnir þeim störfum sem matráður ætlar honum/henni.
Matráður/kokkur sinnir störfum sem stjórnendur ætla viðkomandi með tilliti til starfssviðs.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið
Helstu verkefni og ábyrgð
- Elda hollan og góðan mat
- Gerð matseðla
- Versla inn
- Hugsa um eldhúsið eins og þú eigir það sjálfur/sjálf
- Njóta þess að eiga samskipti við fjölbreyttan hóp starfsfólks og einstaklega skemmtilegra barna
- Stuðla að jákvæðum anda í starfsmannahópnum
- Hafa gaman í vinnunni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Starfsfólk er í fríu fæði
Nánar um leikskólann og allar upplýsingar á heimasíðu Eyrarskjóls https://eyrarskjol.hjalli.is.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Einarsdóttir, leikskólastýra. Vinsamlegast sendið póst á ingibjorgei@hjalli.is.