20. apríl 2021
Störf í boði
Arctic Fish ehf. leitar að starfsmanni í viðhaldsdeild. Viðkomandi mun heyra undir þjónustustjóra fyrirtækisins og getur starfstöðin verið á Ísafirði eða Þingeyri. Umsóknarfrestur til 24. apríl
Helstu verkefni
- Umsjón, aðstoð og samhæfing með viðhaldi báta, tækja og fóðurprömmum félagsins á Vestfjörðum.
- Ábyrgð og utanumhald um lögbundnar skoðanir á búnaði félagsins.
Hæfni
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi. T.d. vélavarsla, vélstjórn eða annað sambærilegt.
- Reynsla og þekking úr rafvirkjun og viðhaldi tölvubúnaðar er kostur.
- Góð tölvukunnátta
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að skila góðu starfi
- Stundvísi, áreiðanleiki og áhugi á verkefninu
Nánari upplýsingar: egill@afish.is