Fara í efni

Aðstoðarkonu á Ísafirði á sólahringsvakt

Störf í boði

Leita að starfsmönnum (konum) á Ísafirði í vaktavinnu allan sólarhringinn

Ég er að leita að starfsmönnum á allar vaktir sólarhringsins, hægt er að semja um hvaða vaktir henta best.

Ég er ung kona sem hef fengið heilaáföll sem valda því að ég þarf aðstoð við mínar daglegu athafnir og áhugamál allan sólarhringinn.

Um er að ræða starf sem byggist á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf hjá NPA (Notendastýrð persónuleg aðstoð), Unnið er eftir vaktaplani og laun eru greidd skv. kjarasamningi NPA Miðstöðvar og Eflingar.

Ég er staðsett á Ísafirði og þarf að komast í sjúkraþjálfun þar, göngutúra, út að hjóla, er virk á instagram og facebook og hef áhuga á að mála og lesa bækur.

Ekki er gerð krafa um menntun. Kostur ef aðstoðarkona er jákvæð, samviskusöm, góð í samskiptum, úrræðagóð og tilbúin að læra nýja hluti.

Gott er ef aðstoðarkona getur byrjað sem fyrst.

Ef þú hefur áhuga á að vinna hjá mér þá máttu endilega hafa samband við systir mína og aðstoðarverkstjórnandann minn Huldu Maríu í síma 868-6633 eða í tövupósti huldanpa@gmail.com