Yfirsálfræðingur - starf án staðsetningar
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir til umsóknar stöðu yfirsálfræðings á heilsugæslu. Starfinu er skipt á milli geðheilsuteymis stofnunarinnar og þjónustu við börn. Aðalstarfsstöð hefur verið á Ísafirði en gert er ráð fyrir að sálfræðingur veiti þjónustu tvo til þrjá daga í mánuði á Patreksfirði. Unnið er að því að geðheilbrigðisþjónusta verði í boði í öllu umdæmi stofnunarinnar, meðal annars með fjarheilbrigðisþjónustu og kemur til greina að sálfræðingur vinni að hluta eða öllu til í fjarvinnu. Næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við skjólstæðinga á Ísafirði, Patreksfirði í gegnum fjarheilbrigðisþjónustu og/eða á staðnum.
- Samstarf við aðrar fagstéttir heilsugæslunnar og geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu.
- Samstarf við skóla og félagsþjónustu á svæðinu, sem og við Barna- og unglingageðdeild Landspítalans.
- Þátttaka í frekari innleiðingu á fjarheilbrigðisþjónustu.
- Þátttaka í uppbyggingu geðheilsuteymis.
- Handleiðsla í boði
Hæfniskröfur
- Klínískt nám í sálfræði og starfsleyfi frá Embætti landlæknis
- Þekking og reynsla á gagnreyndum aðferðum
- Reynsla af greiningu og meðferð barna og fullorðinna með geðrænan vanda
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Jákvæðni og frumkvæði í starfi
- Áhugi, geta og faglegur metnaður til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi
- Góð almenn tölvukunnáttu
- Íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 250 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs. Húsnæðishlunnindi eru í boði bæði á Ísafirði og Patreksfirði.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2022
Nánari upplýsingar veitir
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir - susannaba@hvest.is - 450-4500