Fara í efni

Verkefnisstjóri á Flateyri

Störf í boði

Ísafjarðarbær auglýsir eftir verkefnastjóra á Flateyri. Hlutverk verkefnastjóra er að leiða nýsköpunar- og þróunarverkefni á Flateyri, í samstarfi við verkefnisstjórn á grundvelli samnings milli samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðarstofu. Verkefnisstjóri heyrir undir bæjarstjóra og mun vinna náið með Vestfjarðarstofu, verkefnisstjórn og Hverfisráði Flateyrar.

Um er að ræða 100% starf til tveggja ára og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Megin starfsstöð verkefnisstjóra verður á Flateyri.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
  • Reynsla af ráðgjöf, fjárfestingum eða atvinnuþróun æskileg
  • Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórnun æskileg
  • Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg
  • Reynsla af rekstri kostur
  • Frumkvæði, jákvæðni, samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar

Helstu verkefni:

  • Fylgja eftir ákvörðunum verkefnastjórnar
  • Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum í byggðunum
  • Upplýsingamiðlun og skýrslugerð til íbúa og samstarfaðila
  • Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu
  • Gerð viðskiptaáætlana og markaðsgreininga
  • Móta tækifæri til atvinnuskapandi fjárfestinga í Ísafjarðarbæ
  • Önnur verkefni sem bæjarstjóri felur honum

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2021. Umsóknir skal senda til Baldurs Inga Jónassonar mannauðsstjóra í netfangið baldurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gert grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi, ferilskrá og afrit af prófskírteini / prófskírteinum. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Allar nánari upplýsingar veitir Baldur Ingi Jónasson, mannauðsstjóri baldurjo@isafjordur.is eða í síma 450-8000.