Fara í efni

Vélsmiðjan Þrymur – Vélvirkar/vélstjórar

Störf í boði

Þrymur HF – Vélsmiðja óskar eftir að ráða starfsmann/menn í vinnu. Um er að ræða 100% starf í vélsmiðju sem sér m.a um þjónustu við sjávarútveg, viðgerðir á stærri vinnuvélum o.fl. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið sveinsprófi í vélvirkjun eða annari menntun sem nýtist í starfinu, en einnig kemur til greina að ráða aðila sem er vanur/vön vélaviðgerðum.

Boðið er upp á samkeppnishæf laun. Umsóknarfrestur er til 12 mars

Áhugasamir geta haft samband við Pétur í síma 894 0346, í vélsmiðjunni Þrym við Suðurgötu 9, eða í tölvupósti á petur@thrymur.is