14. september 2022
Störf í boði
Sjóvá - Útibússtjóri á Ísafirði
Við leitum að kröftugum stjórnanda til að leiða útibúið okkar á Ísafirði. Í boði er spennandi og fjölbreytt starf sem krefst leiðtogahæfileika og ríkrar þjónustulundar. Um er að ræða frábært tækifæri til að starfa með öflugu teymi sérfræðinga og stjórnenda um allt land.
Helstu verkefni og ábyrgð
- umsjón og ábyrgð á rekstri útibúsins
- ráðgjöf og þjónusta vegna sölu trygginga og umsýslu tjóna
- viðhald og uppbygging viðskiptatengsla á svæðinu
- að tryggja framúrskarandi þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki
Menntunar- og hæfniskröfur
- háskólamenntun sem nýtist í starfi
- reynsla á sviði stjórnunar
- þekking og reynsla af þjónustu á svæðinu
- frumkvæði, skipulagshæfileikar og mikil þjónustulund
Frekari upplýsingar á vef alfred.is