Fara í efni

Sérfræðingur í markaðsmálum

Fréttir Störf í boði

Sérfræðingur í markaðsmálum

Vestfjarðastofa leitar að öflugum einstakling til að leiða markaðsmál áfangstaðarins Vestfjarða. Viðkomandi kemur að mörgum fjölbreyttum verkefnum svo sem móttöku blaðamanna, þróun verkefna og kynningar- og útgáfumálum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón, þátttaka og eftirfylgni með markaðs- og kynningarmálum
  • Samskipti við hagsmunaaðila
  • Ráðgjöf til fyrirtækja og sveitarfélaga
  • Umsjón með markaðs- og kynningarmálum Vestfjarðastofu
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða sem nýtist í starfi
  • Reynsla af því að stýra markaðsmálum og mörkun
  • Reynsla af greiningum, áætlanagerð, starfrænni markaðssetingu og eftirfylgni
  • Frumkvæði, hugmyndaauðgi en um leið nákvæmni í vinnubrögðum
  • Framúrskarandi lipurð og færni í samskiptum
  • Tæknileg nálgun og hæfni
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku
  • Þekking á ferðaþjónustu og landshlutanum
 

Starfsstöð getur verið á öllum starfsstöðvum Vestfjarðastofu

Starfið krefst ferðalaga, sjálfstæðra vinnubragða og sveigjanlegs vinnutíma 

Um er að ræða fullt starf og er umsóknarfrestur til og með 31. janúar 2022. 

Umsóknir sendist í gegnum umsóknarvef Alfreðs - Hér