Fara í efni

Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir stöðu forvarnafulltrúa - starf án staðsetningar

Störf í boði

Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir stöðu forvarnafulltrúa sem mun vinna að því að styðja við framkvæmd aðgerðaáætlunar 2021-2025 um skipulagðar forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars.

Leitað er að drífandi leiðtoga sem brennur fyrir málefninu og hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, framúrskarandi hæfni í samskiptum, getu til að miðla efni í ræðu og riti, nákvæmni í vinnubrögðum og skipulagshæfileika. Þá krefst starfið þverfaglegs samstarfs og teymisvinnu.

Um er að ræða tímabundið starf til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Sérstaklega er vakin athygli á því að þeir sem ráðnir verða geta haft starfsstöð utan höfuðborgarsvæðisins á einhverjum af þeim starfstöðvum sem Byggðastofnun hefur kynnt fyrir störf án staðsetningar, og má finna á vefsíðu stofnunarinnar eða sambærilegri aðstöðu.

Upplýsingar um starfið má finna hér