Fara í efni

Leikskólakennari óskast - Glaðheimar Bolungarvík

Störf í boði

Laus er til umsóknar 100% staða leikskólakennara við leikskólann Glaðheima.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu skilyrði
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Stundvísi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Allar frekari upplýsingar veita Ragnheiður eða Guðbjörg í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað í tölvupósti gladh@bolungarvik.is.

Umsóknafrestur er til 24. september 2021.

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 nemendur. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is.