03. maí 2022
Störf í boði
Grunnskóli Bolungarvíkur auglýsir lausar stöður grunnskólakennara við skólann.
- 100% stöður á mið- og unglingastigi. Helstu hlutverk/kennslugreinar er umsjón, stærðfræði, íslenska, samfélagsfræði og enska
- 50% staða í kennslu hönnunar og smíði
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu
- Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
- Áhugi á starfi með börnum og unglingum
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
- Góð færni í íslensku máli jafnt í ræðu og riti
- Reglusemi og samviskusemi
Laun og launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknum skilað til skólastjóra á netfangið halldoras@bolungarvik.is með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingum um meðmælendur. Móttaka umsókna verður staðfest.
Nánari upplýsingar veitir Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir skólastjóri í síma 4567249, netfang: halldoras@bolungarvik.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2022.