Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að sinna starfi læknis á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Starfsvettvangur er bæði á heilsugæslu og bráðalegudeild. Starfið hentar lækni með sérfræðiviðurkenningu í heilsugæslulækningum eða öðrum sérgreinum, svo sem lyflæknisfræði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn störf læknis á heilsugæslu, legudeild og eftir atvikum sykursýkisgöngudeild og hjúkrunarheimilum.
- Möguleiki er á að skipuleggja starfið í samræmi við sérþekkingu umsækjenda.
- Vaktþjónusta og kennsla.
- Þátttaka í umbótaverkefnum, teymisvinnu og þróun í samvinnu við yfirlækni.
Læknar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum lækna og viðkomandi deildar.
Hæfniskröfur
- Íslenskt lækningaleyfi. Sérfræðiviðurkenning er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta og íslenskukunnátta skilyrði.
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptafærni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Drifkraftur, þrautseigja og árangursmiðað viðhorf.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum meðmælenda.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.
Sjálfstæðið er mikið í starfi en baklandið gott. Tækin eru ný og uppbyggingarhugur í fólki. Læknar sinna einnig kennslu og þjálfun læknanema.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.05.2021
Nánari upplýsingar veitir
Andri Konráðsson - andri@hvest.is - 4504500
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir - susannaba@hvest.is - 4504500