Fara í efni

Hafnir Ísafjarðarbæjar – Skipstjóri/vélstjóri, sumarafleysing

Störf í boði

Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa laus til umsóknar tvö 100% störf, annars vegar starf skipstjóra og hins vegar vélstjóra, í sumarafleysingu frá 15. maí til 15. september 2022. Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2022.

Hafnir Ísafjarðarbæjar eru fjórar, þ.e. á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri og er öll grunnþjónusta í boði á þessum stöðum. Megin starfsstöð skipstjóra/vélstjóra verður á Ísafjarðarhöfn en viðkomandi mun einnig sinna verkefnum á öðrum höfnum bæjarins þegar svo ber undir. Næsti yfirmaður er hafnarstjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð (skipstjóri):

  • Fer með stjórn lóðsbáts Ísafjarðarbæjar og ber almenna ábyrgð í samræmi við skyldur skipstjóra
  • Hefur umsjón með lóðsbát hvað varðar viðhald og umgengni og annast ýmis minniháttar viðhaldsverkefni s.s. málningu, þrif o.fl.
  • Sér um afgreiðslu rafmagns til skipa og annarra þeirra sem þurfa rafmagn á hafnarsvæðinu
  • Les af orkumælum og færir hafnarstjóra þær upplýsingar til reikningagerðar
  • Ber ábyrgð á að afli sé rétt vigtaður og rétt skráður í aflaskráningarkerfið GAFL

Helstu verkefni og ábyrgð (vélstjóri):

  • Vélstjórn á hafnsögubát og umsjón með viðhaldi vélbúnaðar
  • Að þjónusta skip og báta sem til Ísafjarðarhafna koma, viðlegustjórn
  • Tenging og aftenging vatns og rafmagns til skipa og skráning aflesturs á notkun í afgreiðslubækur
  • Annast viðhald á eigum og mannvirkjum hafnarinnar sem honum er fært
  • Eftirlit og umsjón með búnaði, tækjum og aðstöðu
  • Ber ábyrgð á að afli sé rétt vigtaður og rétt skráður í aflaskráningarkerfið GAFL
  • Umsjón með hafnarsvæði Ísafjarðarhafna, skipulagi, umgengni, hreinsun og tiltekt
  • Öryggisgæsla á hafnarsvæðum og vinna að uppfærslu á öryggismálum hafnarinnar

Skipstjóri og vélstjóri annast að auki ýmis verkefni sem hafnarstjóri fela þeim, s.s. viðhald á eignum og mannvirkjum hafnarinnar og aðstoð við festarþjónustu eftir því sem því verður við komið.

Hæfniskröfur:

  • Skipstjórnarréttindi til stjórnar skipa allt að 24m lengd hið minnsta (A – réttindi) (skipstjóri)
  • Vélstjórnarréttindi 750 kw. að lágmarki (vélstjóri)
    • Kostur ef viðkomandi er með bæði réttindi
  • Slysavarnaskóli sjómanna
  • Góð samskiptafærni og jákvætt viðmót
  • Skipulagsfærni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Bílpróf, stærri vinnuvélaréttindi kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg, önnur tungumál kostur
  • Dugnaður, vinnusemi og sveigjanleiki

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri í síma 450-8080 eða í gegnum tölvupóst á hofn@isafjordur.is.

Umsóknir skulu sendar til mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af viðeigandi réttindum/prófskírteinum.