FISHERMAN leitar að jákvæðum og sjálfstæðum einstakling til að þróa, leiða og viðhalda markaðs- og þjónustustefnu Fisherman. Starfið krefst frumkvæðis og afburða samskiptahæfileika til að leiða góðan hóp til árangurs. Í boði er spennandi starf hjá fyrirtæki sem stækkar ört og hefur sterka framtíðarsýn.
Helstu verkefni eru
- Að hafa umsjón með og fylgja eftir innleiðingu á markaðs og þjónustustefnu.
- Að byggja upp og vera leiðtogi starfsmanna í framlínu fyrirtækisins.
- Að leiða innri markaðssetningu með starfsfólki Fisherman.
- Að veita eftirfylgni með sölu og markaðsáætlun.
Hæfnikröfur
- Mikilvægt er að vera sælkeri.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af markaðs- og kynningarstörfum.
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum.
- Umbótahugsun og afburða samskipta- og skipulagshæfni
- Jákvæðni og frumkvæði
- Góð færni í íslensku og ensku, jafnt í töluðu sem rituðu máli.
Hvers vegna FISHERMAN?
Fisherman býr í litlu, fallegu sjávarþorpi á Vestfjörðum þar sem allt snýst um fisk. Við framleiðum og seljum vörur tengt fisk víða um heiminn. Við tökum á móti þúsundum gesta og bjóðum þeim að kynnast okkar starfsemi hvort sem er í gegnum dagsferðir eða hótelgistingu. Við höfum sett okkur metnaðarfull markmið með vörumerki okkar og viljum nýta auðlindir af ábyrgð og nærgætni til að bæta lífsgæði í nútíð og framtíð. Hjá okkur ríkir heimilislegur og jákvæður starfsandi sem einkennist af metnaði, samstöðu og uppbyggilegum samskiptum. Við bjóðum upp á góðan aðbúnað og fjölskylduvænt vinnuumhverfi. Starfið getur mögulega verið óháð staðsetningu starfsmanns.
Sendið endilega póst á Eddu Sólveigu í netfangið edda@fisherman.is til að óska eftir frekari upplýsingum um starfið.