Fara í efni

Opnað fyrir styrkumsóknir fyrir Nýsköpunar- og samfélagsmiðstöðvar

Fréttir Áhersluverkefni sóknaráætlunar Samfélags- og nýsköpunarmiðstöðvar Sóknaráætlun Vestfjarða

Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir fyrir Nýsköpunar- og samfélagsmiðstöðvar. Að þessu sinni eru 9 miljónir til úthlutunar og er hámarsstyrkur til hverrar miðstöðvar 3miljónir kr.  Verkefnið Nýsköpunar- og samfélagsmiðstöðar er áhersluverkefni Sóknaráráætlunar. 

Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir og er hægt að sækja um á síðu verkefnisins.
Umsóknir þurfa að berast fyrir kl. 16:00, 18. júní 2021.  Umsókn sem hefur verið vistuð fyrir kl. 16:00 telst móttekin.
Að þessu sinni er ekki hægt að sækja um styrk til stofnunar nýrrar nýsköpunar- og/eða samfélagsmiðstöðvar.

Umsækjendum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur áður en hafist er handa við að fylla út umsókn. 
Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur og markmið verkefnisins má finna hér.