Styrktarsjóður Hafna Ísafjarðarbæjar 2025
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr styrktarsjóði Hafna Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2025.
Markmið með sjóðum er að styrkja og bæta bæjarbraginn og eru í ár 8 milljónir til úthlutunar. Sjóðurinn er að þessu sinni þrískiptur þar sem styrkja skal viðburðahald, samfélags- eða fegrunarverkefni sem efla samfélagið í Ísafjarðarbæ.
Hægt er að sækja um styrk að hámarki 800.000 kr. Ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til 4. apríl kl 16:00.
Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Magnea Garðarsdóttir verkefnisstjóri á netfanginu magnea@vestfirdir.is