Fara í efni

Skráning í Markaðsstofu Vestfjarða

Skráningform fyrir aðild að Markaðsstofu Vestfjarða

Hagsmunaaðilar geta orðið þeir lögaðilar sem hafa starfsstöð eða lögheimili á
Vestfjörðum. Með aðild verða gerðir þjónustu- eða samstarfssamningar við Vestfjarðastofu gegn föstu árgjaldi er stjórn ákveður. Hagsmunaaðilar hafa málfrelsi og tillögurétt á ársfundum fulltrúaráðs Sóknarhóps Vestfjarða.

Tegund aðila



Fjöldi stöðugilda á ársgrundvelli



Árgjöld hagsmunaaðila ákvarðast af fjölda stöðugilda á ársgrundvelli og eru eftirfarandi: Örfyrirtæki 1-5 stöðugildi 49.500 kr. Lítil fyrirtæki 6-20 stöðugildi 82.500 kr. Millistór fyrirtæki 21-59 stöðugildi 137.500 kr. Stærri fyrirtæki 60+ stöðugildi 275.000 kr.
Með því að fylla út netfang vegna póstlista, veitir þú Vestfjarðastofu leyfi til að senda þér Fréttabréf Vestfjarðastofu, umsagnir og uppfærslur er varða málefni Sóknarhóps og Markaðsstofu Vestfjarða.
Skilmálar

Fyrirtækið/lögaðilinn gengur með útfyllingu og staðfestingu á þessu eyðublaði í Markaðsstofu Vestfjarða og Sóknarhóp Vestfjarðastofu ses. kt. 580518-1170, sem eru vettvangar fyrirtækja og stofnana á Vestfjörðum.

Samstarf aðila er með fyrirvara um að lögaðili uppfylli skilyrði Samþykkta Vestfjarðastofu og sé með öll tilskilin leyfi til atvinnurekstrar sem lúta að starfsemi þess. Sóknarhópur er heildarhópur allra hagsmunaaðila.

Samstarfið er ótímabundið og tvíhliða. Aðila er heimilt að segja samstarfi upp án fyrirvara, og skal uppsögn berast skriflega.

Árgjald verður ekki endurgreitt við uppsögn, en aðild verður ekki endurnýjuð á næsta tímabili.

Lögaðili skuldbindur sig til þess að velja svið og stærðarflokk sem er viðeigandi og uppfæra þann flokk ef breytingar verða á rekstri. Stærðarflokkur miðast við stöðugildi á ársgrundvelli. Árgjöld og verðskrá má finna hér.

Vestfjarðastofa sendir reikninga árlega.

Ef við á, bera lögaðilar ábyrgð á að koma efni til Vestfjarðastofu til kynningar bæði á heimasíðu og með öðrum hætti. Með staðfestingu heimilar lögaðili Vestfjarðastofu ses. að birta efni á miðlum sínum um samstarfsfyrirtæki nema annað sé tekið fram.

Aðilar að Markaðsstofu Vestfjarða fá tækifæri til að taka þátt í Vestfjarðaleiðinni. Vestfjarðaleiðin er ferðaleið sem unnin er í samstarfi við Áfangastaðastofu Vesturlands. Aðildinni fylgir aukinn sýnileiki í markaðsefni Vestfjarðaleiðarinnar og á ferðasýningum, þátttaka í vinnustofum og öðrum samstarfsverkefnum.

Siðareglur Markaðsstofu Vestfjarða

Markaðsstofa Vestfjarða

Siðareglur um samskipti við aðildarfélaga

1. gr. 

Markmið

 

Siðareglur þessar gilda fyrir Markaðsstofu Vestfjarða (hér eftir Markaðsstofan). Þær binda í orð þau gildi og þá siðferðilegu ábyrgð sem Markaðsstofan og aðildarfélagar hafa í heiðri í samvinnu sinni, á sameiginlegum viðburðum eða á öðrum þeim vettvangi þar sem Markaðsstofan kemur fram í félagi við aðildarfélaga. Siðareglurnar skulu vera leiðbeinandi varðandi samskipti og samstarf sem og um úrlausn mála.

 

 

Virðing og heiðarleiki

Markaðsstofan er markaðs- og áfangastaðastofa fyrir Vestfirði. Meginhlutverk hennar er að styðja við ferðaþjónustu í sínum landshluta og stuðla að sjálfbæri þróun hennar í sátt við íbúa.

  • Aðildarfélagar Markaðsstofu skulu sýna hver öðrum virðingu í öllum samskiptum sem fram fara á vettvangi Markaðsstofunnar.
  • Aðildarfélagar skulu taka þátt í störfum Markaðsstofunnar af trúmennsku og heiðarleika. Þeir skulu gæta þess að hátta störfum sínum í samræmi við gildandi lög og gott siðferði.
  • Aðildarfélagar skulu forðast að taka þátt í aðgerðum eða umræðum sem geta kastað rýrð á orðspor áfangastaðarins eða dregið úr trausti á fyrirtækjum og atvinnulífi á svæðinu.

 

Samkeppni og hagsmunaárekstrar

  • Markaðsstofa er samstarfsvettvangur fyrirtækja, einyrkja, félagasamtaka og stofnana sem mörg hver eru í innbyrðis samkeppni.
  • Aðildarfélagar Markaðsstofu skulu gæta þess að samskipti þeirra á vettvangi Markaðsstofunnar brjóti aldrei í bága við samkeppnislög á hverjum tíma.
  • Aðildarfélagar Markaðsstofunnar skulu forðast hagsmunaárekstra í störfum sínum á vettvangi Markaðsstofu og vekja athygli á því ef hætta er á þeim.

 

Þátttaka í viðburðum

Markaðsstofan heldur reglulega viðburði á eigin vegum innan svæðis og tekur þátt í sameiginlegum viðburðum innanlands með aðildarfélögum og eins erlendis á ferðasýningum og vinnustofum.

 

  • Þátttakendur á viðburðum á vegum Markaðsstofu skulu ávallt vera

snyrtilegir til fara, faglegir í tali og aldrei undir sýnilegum áhrifum áfengis eða vímuefna.

  • Á viðburðum Markaðsstofu skulu aðildarfélagar gæta þess í hvívetna að bera virðingu hver fyrir öðrum og veita öðrum næði til að sinna kynningarstarfi sínu. Virði aðildarfélagar ekki þessi tilmæli og komi af þeim sökum til árekstra mun starfsfólk Markaðsstofu leitast við að leysa ágreininginn. Takist það ekki skal vísa þátttakendum af svæðinu.
  • Taki aðildarfélagar þátt í viðburðum á vegum Markaðsstofu skulu þeir ekki nýta viðburðinn til að dreifa efni sem fellur eindregið utan starfssviðs fyrirtækisins og Markaðsstofu, svo sem áróðri fyrir skoðunum, stjórnmálahreyfingum, lífsskoðunarhreyfingum eða öðru slíku.

 

2. gr.

Fylgni við siðareglur

 

  • Starfsfólk Markaðsstofu sem og aðildarfélagar skulu leitast við að fylgja siðareglunum sem hér eru settar fram af kostgæfni og starfa í anda þeirra.
  • Ekki verður hægt að setja fram tæmandi reglur um öll þau atvik sem komið geta upp í starfsemi eða í samskiptum Markaðsstofu við aðildar- og samstarfsfélaga, og því mikilvægt að inntak siðareglnanna sé í hávegum haft: að virðing og heiðarleiki séu í fyrirrúmi í samskiptum og samstarfi.
  • Ef greina þarf frá skýrum brotum á siðareglum þessum ber að gera það til stjórnar Markaðsstofu sem bregðast skal við með viðeigandi hætti.