Sóknaráætlanir landshluta eru þróunarverkefni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og landshlutasamtaka sveitarfélaga samkvæmt samningum sem gilda til fimm ára. Núgildandi Sóknaráætlun er fyrir tímabilið 2020-2024.
Undir Sóknaráætlun er annars vegar Uppbyggingarsjóður Vestfjarða og hins vegar Áhersluverkefni sem skilgreind eru til allt að þriggja ára í senn.
Áætlunin er gerð til 5 ára en hægt er að uppfæra hana innan tímabilsins.
Úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða fer fram einu sinni á ári í desember. Skipuð er níu manna úthlutunarnefnd sem fer yfir umsóknir um styrki, og síðan 2015 hafa um eða yfir 120 umsóknir um styrki borist ár hvert og hafa fjölmörg áhugaverð verkefni orðið að veruleika með tilstuðlan styrkja úr Uppbyggingarsjóði.
Starfsmaður

