    <language>is</language>
Fréttir | Vestfjarðastofa
Niður­stöður rann­sóknar á byggða­brag í Vesturbyggð
Þátt­tak­endur í nýrri rann­sókn á byggða­brag í Vest­ur­byggð telja almennt gott að búa í sveit­ar­fé­laginu. Þeir lýsa sterkum tengslum við fólk í sínu nærum­hverfi, stolti af nátt­úr­unni og jákvæðu viðhorfi til nýrra íbúa. Niður­stöð­urnar sýna jafn­framt að íbúar upplifi aðgengi að þjón­ustu og mögu­leika til áhrifa með ólíkum hætti eftir búsetu. Sveit­ar­fé­lagið mun vinna áfram með niður­stöð­urnar og nýta þær til að móta áherslur í starfi næstu ára.]]></description>
Miðlunar- og samskiptastefna Vestfjarðastofu gefin út
Vestfjarðastofa hefur gefið út miðlunar- og samskiptastefnu sem ætlað er að tryggja gagnsæi, aðgengi og samræmi í upplýsingamiðlun stofnunarinnar. Stefnan markar sameiginlega sýn um ólíka miðlun og er liður í því að efla fagleg og skilvirk samskipti.]]></description>
Þrír styrkir til vestfirskra vinnustaðaklasa 
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað rúmum 27 milljónum kr. í styrki til 14 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar (aðgerð B.7 – Óstaðbundin störf). Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Þetta er í annað sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni, en í mars sl. úthlutaði ráðherra fimmtíu milljónum til 26 vinnustaðaklasa.]]></description>
Fréttabréf októbermánaðar komið út 
Í þessu fréttabréfi kynnum við nokkur af þeim verkefnum, viðburðum og áherslum sem hafa verið áberandi í starfi síðustu vikna. ]]></description>
Menning og listir á Vestfjörðum – ráðstefna MNH á Ísafirði
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um menningu, listir og skapandi greinar á Vestfjörðum fimmtudaginn 26. nóvember í Edinborgarhúsinu, Ísafirði. Skráning er nauðsynleg. Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu, en gestir greiða sjálfir fyrir kvöldverð. ]]></description>
132 umsóknir bárust í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða 
Kallað var eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða vegna verkefna ársins 2027 um miðjan september og rann umsóknarfrestur út 21. október. ]]></description>
Umsagnir um fjárlög 2027,skattheimtu, nýtingu náttúruauðlinda og farsæld barna
Október er að venju annasamur við gerð umsagna frá Alþingi eftir að þingið kom að nýju saman í september s.l. og eins drög frumvarpa og þingsályktana á þingmálaskrá ríkisstjórnar sem setta hafa verið í Samráðsgátt stjórnvalda.]]></description>
Farsældarverðlaun 2026 - Tilnefningar
Hver gerir líf barna og fjölskyldna á Vestfjörðum betra?
Fyrstu ferðirnar staðfestar í kjölfar markaðsstarfs á Asíumarkaði
Dagana 28. til 30. október tók Markaðsstofa Vestfjarða á móti tveimur fulltrúum alþjóðlega ferðaþjónustufyrirtækisins Kuoni Tumlare í kynnisferð um Vestfirði. Heimsóknin var hluti af vetrarverkefni Markaðsstofunnar, þar sem unnið er að því að lengja ferðatímabilið, byggja upp ný viðskiptasambönd og fjölga ferðamönnum utan háannatíma.
Fulltrúarnir starfa hjá þeim hluta Kuoni Tumlare sem hefur meðal annars lagt sérstaka áherslu á ferðir frá Japan og Taívan til Íslands. Báðir markaðirnir eru áhugaverðir fyrir Vestfirði, ekki síst vegna tækifæra til að þróa ferðir utan hefðbundins sumartíma.]]></description>
Ferðaþjónustan á dagskrá í viðburðaríkri viku hjá Markaðsstofu Vestfjarða
Síðustu dagar hafa verið viðburðaríkir hjá Markaðsstofu Vestfjarða þar sem málefni ferðaþjónustunnar hafa verið til umræðu á fjölbreyttum vettvangi. Markaðsstofan tók þátt í fundi um framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi, fundaði með atvinnuvegaráðherra og kynnti helstu verkefni sín á 71. Fjórðungsþingi Vestfirðinga.]]></description>
Vestfirskir prjónarar frelsa fólk frá óþarfa fundum
Íris Björg Guðbjartsdóttir í Strandabyggð, Íris Ösp Heiðrúnardóttir á Ísafirði, Sunnefa Elfarsdóttir á Þingeyri og Jóhanna Ösp Einarsdóttir í Gufudal í Gufudalssveit eru meðal prjónaranna í nýrri markaðsherferð Íslandsstofu. Þær taka þátt í þjónustu þar sem íslenskir prjónarar sækja fjarfundi og prjóna fundarnótu úr íslenskri ull.]]></description>
Þrettán ályktanir samþykktar á 71. Fjórðungsþingi Vestfirðinga
Mikil þátttaka og góður andi einkenndi 71. Fjórðungsþing Vestfirðinga sem lauk á Patreksfirði í dag. Þar komu saman sveitarstjórnarfulltrúar alls staðar af Vestfjörðum, þar á meðal fjölmargir nýkjörnir fulltrúar sem sátu þingið í fyrsta sinn, og samþykktu 13 ályktanir um helstu hagsmunamál landshlutans.]]></description>
Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Vestfjörðum
Fimmtudaginn 29. október halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við Vestfjarðarstofu opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Vestfjörðum. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Vestfjarðarstofu við Suðurgötu 12 á Ísafirði, kl. 11:45 og er opinn öllum.]]></description>
Fjársjóðurinn felst í fólkinu og samheldninni
Samheldni, frumkvæði og trú á framtíðina einkenndu árlegan íbúafund byggðaþróunarverkefnisins Fjársjóðs fjalla og fjarða, sem haldinn var fimmtudaginn 15. október í bókasafni grunnskólans á Reykhólum. Þetta var annar íbúafundurinn undir merkjum verkefnisins og fór mæting fram úr björtustu vonum aðstandenda. Íbúar tóku virkan þátt í samtali um stöðu verkefnisins, árangur og tækifæri til frekari uppbyggingar samfélagsins.]]></description>
Kraftur í Kaldrana á vel sóttum íbúafundi 
Góð mæting, líflegar umræður og fjölmargar hugmyndir einkenndu íbúafund verkefnisins Jú víst! Kraftur í Kaldrana sem haldinn var í Samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi þann 13. október síðastliðinn. Fundurinn var mikilvægur vettvangur fyrir íbúa til að ræða framtíð byggðarinnar, kynna sér framgang verkefnisins og taka þátt í að móta næstu skref.]]></description>
Mótvindur // Fundur um ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi 
Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða boða til mikilvægs fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 22. október í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi, og stendur á milli kl. 17.00 - 19.00. Fundurinn verður jafnframt sendur út í beinni útsendingu á vef SAF.]]></description>
Öflugur hópur frumkvöðla valinn í Startup Landið 2026
Fjórtán fjölbreytt nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni.]]></description>
Almyrkvaverkefninu formlega lokið
Almyrkvaverkefninu formlega lokið
Fulltrúar þeirra fjölmörgu aðila sem komu að undirbúningi og framkvæmd almyrkvans 12. ágúst komu saman í forsætisráðuneytinu á dögunum til að líta yfir farinn veg og draga saman helsta lærdóm verkefnisins.
Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða, tók þátt í dagskránni fyrir hönd Vestfjarðastofu og fjallaði, ásamt Þuríði H. Aradóttur Braun frá Markaðsstofu Reykjaness, um verkefnið frá sjónarhóli samstarfsaðila. Þar var meðal annars farið yfir mikilvægi góðs samstarfs milli heimamanna, sveitarfélaga og stofnana við undirbúning svo umfangsmikils viðburðar.
Fréttabréf septembermánaðar komið út
Fréttabréf Vestfjarðastofu fyrir septembermánuð er komið út. Haustið er komið með tilheyrandi haustlægðum og er árstíðin oftar en ekki sú annasamasta á Vestfjarðastofu, nema þegar vorið ryðst fram með látum.
Í fréttabréfinu er meðal annars fjallað um staðfestingu Svæðisskipulags Vestfjarða 2025–2050, sem nú tekur við að fylgja eftir. Það segir frá Ungmennaþingi Vestfjarða á Suðureyri þar sem um 40 ungmenni af öllum Vestfjörðum komu saman. Menningin á líka sinn sess, en fjallað er um endurvakningu Félags vestfirskra listamanna sem hélt vel sótt Listamannaþing á Ísafirði. Einnig er fjallað um hugmyndasamkeppni Hafna Ísafjarðarbæjar um nýtt útilistaverk.]]></description>
Að þybbast við, ýta á og láta eigi kúgast
Hér birtist í heild sinni ávarp Aðalsteins Óskarssonar, sviðsstjóra byggðaþróunar og starfsmanns Svæðisskipulagsnefndar, sem hann flutti við undirritun Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050 við minnisvarða um Kollabúðafundina í Þorskafirði]]></description>