Velkomin til okkar í Dýrafjörð
|
Gallerí Koltra & Upplýsingamiðstöð Ferðamannna. Sumaropnun 10-18 virka daga og 11-17 um helgar. Sími 456 8304 umthingeyri@snerpa.is. Kaffiveitingar |
Íþróttamiðstöð Þingeyrar. Innisundlaug - Íþróttahús - Strandblakvöllur - Knattspyrnuvöllur - Frjálsíþróttaaðstaða. Sumaropnun 7:45-21:00, lau 10-18, sun 10-17. Annar opnunartími yfir veturinn. Sími 456 8375. |
|
|
Víkingabúðir - Hátíðarsvæði. Veisluaðstaða við fjöruborðið. Verkefni tengt Gísla Sögu Súrssonar. Víkingar á Vestfjörðum. - www.westvikings.com Sími 456 8228. |
Skrúður & Menningarminjasafnið Hlíð. Einn elsti skrúðgarður landsins frá 1909 og minjasafn í húsi stofnanda hans, Séra Sigtryggs. Sumaropnun 10-12 og 13:30-15:30 um helgar. Virka daga þarf að panta í síma 456 8239. Aðgangur 500 kr. |
|
|
Hólmavatn. Vatnaveiði í Brekkudal. Maðkur, fluga. Opið frá 14-18 alla daga. Sími 893 7643 og 456 8143.
|
Þingeyrarkirkja. Vígð 9. apríl 1911. Arkitekt: Rögnvaldur A. Ólafsson. Altaristafla frá 1911, Jesús blessar börnin. Listmálari: Þórarinn B. Þorláksson. Skírnarfontur skorinn af Ríkharði Jónssyni. |
|
|
Tjaldstæði. Staðsett við sundlaugina. Aðstaða fyrir húsbíla. Þvottavél og þurrkari. Verð 500 kr á tjald/bíl.
|
Skeiðvöllur. Skeiðvöllur, gerði og hesthús að Söndum. Öll aðstaða til mótshalds. |
|
|
Kaldbakur. Hæsta fjall Vestfjarða, 998 m. 2 metra varða. 3 klst gangur úr Fossdal. Hægt að keyra upp í Kvennaskarð sem liggur á milli Kirkjubólsdals og Fossdals og ganga þaðan. Jeppavegur. |
Fyrir Nes. Jeppavegur úr Dýrafirði og inn í Arnarfjörð. Yfirþyrmandi glæfraleg á köflum. Ægifögur. Sæta þarf sjávarföllum í stórstreymi. Flóðatafla og upplýsingar um færð í Upplýsingamiðstöð. |
|
|
Hraunskirkja í Keldudal. Hraunskirkja var reist árið 1885 og er af elstu formgerð turnlausra íslenskra timburkirkna. Hraunskirkja var aflögð sem sóknarkirkja árið 1971 og er nú í vörslu Þjóðminjasafnsins. |
Haukadalur. Söguslóðir Gísla Sögu Súrssonar. Gönguferðir með leiðsögn skv. samkomulagi. Leiðsögumaður Þórir Örn Guðmundsson. Sími 456 8182 og 863 2412 |